fimmtudagur, desember 07, 2006

Grrrr

Dagurinn byrjaði ekki sérlega gleðilega. Tók eitt próf í morgun sem bara gekk, segi ekki meir. Nú svo fór hann batnandi. Lét skera smá af lubbanum á mér og lita. Loksins sé ég aftur út um augun. Vona líka að ég sé búin að koma í veg fyrir að ég verði fjölskyldu minni til skammar þessi jólin.


Ég fór svo og eyddi smá peningum. Þeim var vel eytt í þetta sinn. Keypti afmælisgjafir handa ástkærri móður minni sem á afmæli á sunnudaginn. Fyrst ég var nú á ferðinni leit ég við í Hagkaupum þar sem ég datt heldur betur í lukkupottinn. Hitti hann þennan um leið og ég gekk inn. Það var bara eins og örlögin væru að verki. Við litum hvort á annað og brostum og fórum svo á bakvið í sturtu saman. Nei ok, kannski ekki alveg en ég ,,hitti" hann Jóa minn. Gott ef ég rann ekki smá og roðnaði frá haus og niður.
Ég fór svo bara heim með gleði í hjarta og bros á vör. Þegar heim var komið kveikti ég á sjónvarpinu til þess að sjá aðeins hann Felix minn sem ég hef ekki séð svo lengi. Var ekki Jói minn mættur í heimsókn til Fella og Gunnu. Hvílík tilviljun. Tvisvar á sama degi.
Gerist það mikið betra?

4 ummæli:

Hulda hefur talað... sagði...

Já særún...augljóslega fædd undir heillastjörnu!

Kristjana Páls sagði...

og heillastjarnan leiddi ykkur saman!

Nafnlaus sagði...

Vá Særún...þetta er tákn frá guði! Held að Stjana geti frætt þig betur um hann eftir heimsóknina í gær;) Úfff elskan, þú og Felli...amazing!

Nafnlaus sagði...

ÞVílíkur unaður hann Jói kallinn, það var greinilega eitthvað í loftina þarna!